Auglýsing

Maí mánuður :)

20. maí 2010 klukkan 17:39
Við erum ekkert mjög dugleg á að skrifa hérna inná, en ætla samt að reyna að gera eina færslu í mánuði. Við erum auðvitað með facebook sem svona kemur í staðinn fyrir bloggfærslur.

Ég átti afmæli í byrjun mánaðrins nákvæmlega 2. maí. En var enþá að læra fyrir próf svo það var ekki mikið gert, en ég var samt vakin og fékk ístertu með mynd af maríuhænu, mjög flott. Þegar próf vikan var búin héldum við uppá afmælið með að fara út að borða og síðan í bíó. Fórum á myndina Date Night, hún er mjög fyndin, mæli eindreigið með henni. Síðan daginn eftir fórum við upp til Moncton að versla í H og M og Costco, ég keypti mér stuttbuxur og sumarkjól í H og M en Guðjón keypti sér peysu og sólgleraugu. Í Costco keyptum við ýmislegt en fyrir afmælispeningana mína keypti ég mér myndavél, bleik og sæt.

Ég er búin að vera á fullu að leit af vinnum, í síðustu viku fór ég í atvinnuviðtal en fékk ekki vinnuna, fannst samt viðtalið ganga mjög vel. Guðjón var á ráðstefnu um helgina í sambandi ið allt sem lifir í sjó á þessu svæði, eða e-ð þannig... Vona að ég er ekki að bulla, samt smá líkur á því svo takið þessum upplysingum með vara. Sótti um nokkur störf í gær og fer á nokkra staði á morgun til að sækja um í eigin persónu, það virkar oftast betra. Fékk samt símtal í morgun um að ég hefði sótt um starf í Moncton, en ég hef þá lesið eithvað vitlaust, því Moncton er alveg í klukkutíma fjarlægð.

Þessi mánuður er alveg í ruglinu hjá mér, man ekkert hvort það var núna um helgina sem Guðjón var á ráðstefnunni eða hvort það var síðustu helgi. En allavegana þá fórum við i Irving Nature Park sem er rétt hjá Saint John. Við fórum labbandi þar sem það er langskemmtilegast, en það er líka hægt að fara á bíl, sem er mjög þæginlegt fyrir fólk með púka. En við fórum leið sem heitir Íkorna leiðin og sáum einn íkorna en það skemmtilega sem við sáum var puntsvín, sem var að naga börkin á trjánum. Síðan fórum við á sela leiðina, en ég sá engan sel, held að þetta er ekki alveg staðurinn sem þeir fara á. En við ákváðum þá að fara Chicadee leiðina, sáum heldur enga Chicadee þar, en sáum samt mjög skemmtilegan íkorna. Viltumst síðan smá  og enduðum á því að fara til baka hluta leiðarinnar og síðan áfram, þetta var alveg 3 tíma ganga. Setti smá myndir inná Valey og Guðjón í Kanada myndaalbúmið, en þær eru líka allar á facebook.

Er með komið það samt á hreinu eftir þessar tvær vikur að ég ætla aldrei að gerast heimavinnandi, það er ekkert smá leiðinlegt að skúra og þrífa einn. Vonum bara það besta með þessar vinnur.

Þetta er nóg í bili :)

Valey
Valey Jokulsdottir
Almennt | 2 athugasemdir

Páskar

28. apríl 2010 klukkan 22:20
Núna um páskana ákváðum ég og Valey að skella okkur upp til Québec city, eða Ville de Québec eins og frönskumælandi Kanadamennirnir vilja kalla borgina, en þessi borg er höfuðborg Québec og er í u.þ.b. 7 klst aksturfjarlægð frá Saint John.

Við lögðum af stað eftir hádegi á Skírdag þar sem ég var í tímum um morguninn. Við keyrðum sem leið lá norður, fyrst upp til Fredericton og þaðan eftir TransCanadian Highway sem liggur þvert yfir Kanada. Á þeirri leið sáum við skylti sem á stóð „Nackawick: Home of the world largest Axe" og við urðum auðvitað að stoppa þar til að sjá stærstu öxi í heiminum, var frekar fyndið og rosalega amerískt. Við urðum líka að stoppa í „bænum" New Denmark, sem samanstóð af c.a. 3 húsum og einu litlu safni sem var lokað. Sáum þó dönsk áhrif þarna, danska fánanum var flaggað á einu húsi, Jensen á einum póstkassa og danskt veggjakrot. Þetta var víst nokkuð stór landnámsbyggð dana, en þeir eru nú víst flestir horfnir á braut.
Við enduðum þennan dag í Edmunston í Norður New Brunswick þar sem við gistum á skuggalegu en ágætu og ódýru móteli. Norður New Brunswick er ansi frábrugðið suðurhlutanum, öðruvísi byggingar, mikið um kaþólskar kirkjur og flestir tala frönsku, þó svo að enskan slæðist með hér og þar.

Á föstudaginn langa keyrðum við síðan upp til Québec. Það var dáldið eins og að koma til annars lands, öll skylti á frönsku og auðvitað bara töluð franska alls staðar. Við reyndum okkar besta í frönskunni, en fólk skipti nú yfirleitt yfir í enskuna þegar það heyrði hana hjá okkur. Við komum síðan til Québec City um hádegisbilið. Borgin er ansi skemmtileg, og mjög gömul miðað við aðrar borgir hér í Kanada og hefur því þröngar göngugötur, gömlum fallegum byggingum og fullt af ferðamönnum og þar af leiðandi er ofgnótt veitingastaða, bara og kaffihúsa. Hótelið okkar var lítið og mjög fínt, staðsett alveg niðrí gamla bænum, en elsti hluti bæjarins er innan virkismúra, þar sem þetta virki var síðasta vígi Frakka í Kanada, og á stórum grasabala skammt frá sigruðu Englendingar Frakka í orustunni um Fields of Abraham og náðu þannig algjörum yfirráðum í Kanada. Núna er þetta virki safn, heimili Governor General of Canada hluta ársins, og heimili einnar hersveitar í landher Kanada. Við skoðuðum auðvitað þetta virki, löbbuðum um bæinn, drukkum bjór úr 50 cm háu glasi og nutum veðurblíðunar, en það var um 25°C og sól þessa helgi. Við fórum líka fínt út að borða um kvöldið og borðuðum ágætis lax og kræklinga. Semsagt mjög skemmtileg ferð í alla staði. Á páskadag keyrðum við síðan í 8 tíma til að komast heim.

Síðustu vikur hafa síðan verið fremur hefðbundnar, lærdómur hjá okkur báðum, en þess á milli höfum við verið slatta í garðinum, sem er mjög skemmtilegur, kveikt varðelda í skóginum fyrir ofan garðinn, hlustað á froskana og svona. Það er nánast komið sumar hérna, og komnir nokkuð margir mjög góðir dagar, hlakka mikið til sumarsins, verður eflaust ljúft. Myndir úr ferðinni er hægt að sjá á facebookinu hjá Valey.
G!
Valey Jokulsdottir
3 athugasemdir

Flutningar

06. mars 2010 klukkan 19:21
Ég og Guðjón fluttum núna síðustu helgi til Quispamsis sem er nokkurskonar úthverfa bær við Saint John, minnir svo lítið á Garðabæ þar sem þetta er ríkari bæjarfélag og lítið. Við búum í kjallara á einbýlishúsi, en erum með tvo sér innganga einn inn í eldhús og einn inní stofu, hægt er að sjá þetta allt saman í myndaalbúminu. Erum mjög ánægð með þessa íbúð þar sem hún er mun bjartari og stærri en síðasta íbúð.

Ég tek lokaprófin mín úr háskólanum hérna úti, þar sem ég fann ræðismann hérna í Saint John, hún er íslensk. Kom mjög á óvart þar sem ég og Guðjón vorum eiginlega búin að gera ráð fyrir því að við vorum einu íslendingarnir hérna. Það voru víst fleiri en þeir eru allir fluttir í burtu.

Hitinn í íbúðinni okkar virkaði ekki almennilega þegar við fluttum inn og það var alltaf um 17 gráður hérna. Svo ég bakaði mikið, súkkulaði köku og eplaköku svona til að halda inni hitanum :) Stórfínar kökur, hefði nú verið til í að geta boðið einhverjum í heimsókn í kökur :P

Ég er ekki mikið í þessu blogg dóti, held að þessi færsla er nóg, allavegana í bili.

Valey

Valey Jokulsdottir
Almennt | 4 athugasemdir

Hefðbundin helgi í Kanada

17. febrúar 2010 klukkan 02:22

Jæja, víst kominn tími á aðra færslu.

Um helgina fór laugardagurinn aðallega í lærdóm, en kíktum líka á nýju íbúðina og skoðuðum hvernig ástandið var, en hún er farin að líta ansi vel út, komið nýtt parket og flísar, og bara eftir að setja upp lista og síðan taka til í henni, og getum við vonandi byrjað að flytja eitthvað smotterí næstu helgi. Fórum síðan í bíó um kvöldið.

Á sunnudeginum byrjuðum við daginn á því að fara á skauta í Rockwood park, áður en við fórum heim í bollubakstur. Bollurnar heppnuðust ansi vel, en ég get ekki mælt með að bræða súkkulaði í örbylgjuofninum, þótt að það standi á pakkanum (Quick and easy method!). Sú tilraun endaði þannig að íbúðin fylltist af reyk og lykt af brenndu súkkulaði. Prófuðum sem betur fer bara nokkra bita með þessari aðferð, þannig að við gátum smellt súkkulaði á bollurnar og borðað í kaffitímanum. Borðuðum síðan fínt sushi í kvöldmatinn. 

Ég var síðan að enda við að elda baunasúpu, þar sem ég notaði saltað nautagúllas í staðinn fyrir súpukjötið og heppnaðist súpan bara rosalega vel og við átum á okkur gat eins og venja er á þessum degi.


Annars er nóg að gera í skólanum, var að skila af mér 80 skýrslum sem ég var að fara yfir í kennslunni, og svo er ég líka að undirbúa fund hjá doktorsnefndinni minni á föstudaginn. Næstu helgi er okkur síðan boðið í potluckpartí hjá stelpu í líffræðinni, og verður eflaust mikið fjör.

Nóg í bili,
G! 

Valey Jokulsdottir
3 athugasemdir

Frost

07. febrúar 2010 klukkan 18:23
Hér er um -4 gráður í dag, sem telst frekar gott miðað við undanfarið, þar sem oftast er um -14. Klæði mig mjög vel þegar ég fer út úr húsi og Pils eru ekki notuð.

Fórum á föstudagskvöldið að sjá íshokký keppni þar sem prófesorin hans Guðjóns og nokkrir aðrir framhaldsnemar í líffræðinni voru að keppa. Þetta var á Lilly lake sem er lítið vatn í Rockwood Park, það voru 15 vellir á því, frekar litlir samt og allur ágóði keppnarinnar fóru í góðgerðamál. Þetta er víst árlegur viðburður hérna. Það var samt svo kalt að horfa á þetta, vorum ógeðslega vel klædd og samt fannst mér puttarnir mínir vera að detta af mér. Liðið okkar tapaði, en mér fannst þeir standa sig samt mjög vel, ekki get ég verið svona góð á skutum og síðan með kylfu í hendinni og elta einhvern svartan hlut :P.

Skólinn hjá mér gengur ágætlega, má vera duglegri í lestrinum en þetta er bara svo mikið efni sem ég þarf að komast yfir. Er samt að vinna það upp núna :P ekki segja neinum að ég hafi verið að blogga, shusss :P

Kveðja Valey
Valey Jokulsdottir
Almennt | 1 athugasemd

Skautar og ný íbúð

01. febrúar 2010 klukkan 01:41
Jæja, núna er komið sunnudagskvöld og kannski kominn tími á næstu færslu

Í gær fórum við í heimsókn til Mörthu sem er norsk stelpa á labbanum mínum, en hún hafði boðið öllum á labbanum á skauta og síðan í mat. Það þýddi að á fimmtudaginn fórum við og keyptum skauta í búð sem selur aðallega notaðan hokkíbúnað. Við fengum þessa fínu skauta á innan við 50$ fyrir okkur bæði.
Í stuttu máli þá var þetta mjög gaman, þetta var í þriðja sinn sem ég fer á skauta, en mér gekk samt sem áður alveg þokkalega og prófaði meira að segja að spila hokkí , gaman að prófa þessa íþrótt sem allir eru gagnteknir af hérna, prófessorinn minn var alveg skuggalega góður í því og var yfirburðamaður á svellinu. Tókum eitthvað af myndum sem eru í myndaalbúminu hérna á síðunni.
Eftir skautana fengum við svo dádýrakássu að norskum hætti sem var mjög góð og vorum þar frameftir kvöldi að spjalla.

En að öðru, gengum frá leigusamningi á nýju íbúðinni á fimmtudaginn og sögðum upp íbúðinni sem við erum í núna, þannig að við munum flytja í lok mánaðarins. Nýja íbúðin neðri hæð af húsi, og er staðsett í Quispamsis, sem er í c.a. 15 mínútna fjarlægð frá miðbæ Saint John. Þetta svæði er mun skemmtilegra, en Saint John, erum nálægt strönd við Kennebecasis ánna, þar sem er hægt að synda á sumrin og skauta á veturna, einnig er aðeins hlýrra þarna á sumrin, og minna um þoku heldur en í Saint John sjálfri. Íbúðin sjálf er líka stærri og skemmtilegri en sú sem við erum í núna, fáum stærra eldhús, bjartari stofu, eigin inngang, smá pall þar sem við getum grillað og slakað á á sumrin og síðast en ekki síst annað herbergi sem við ætlum að nota sem skrifstofu. Smellum inn myndum af slotinu þegar við fáum afhent.

Nóg í bili, endilega kíkið á myndirnar í myndaalbúminu.
G!

Valey Jokulsdottir
3 athugasemdir

Ný íbúð

28. janúar 2010 klukkan 00:12
Í dag fórum við Guðjón að skoða íbúð. Íbúðin er staðsett í Quispamsis sem er einhverskonar úthverfi Saint John, reyndar meiri eins og Garðabær reykjavíkur Tongue out. Þetta er kjallari á húsi, okkur leist vel á þetta því þá verðum við með sér inngang að íbúðinni, litla verönd og sameiginlegan risastóran garð, þar sem ég má rækta blóm. Getum grillað á veröndinni á sumrin og farið á strönd sem er í Kennebecasis ánni 5 km í burtu. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum svo ég geti haft eigin skrifstofu fyrir skólann minn. Blogga meira um þetta þegar við erum búin að ganga frá þessu, get líka sett inn myndir þegar við erum búin að koma okkur fyrir.

Það gegnur allt mjög vel hjá okkur í skólanum og við höfum það mjög fínt :)

Kv. Valey
Valey Jokulsdottir
Almennt | 2 athugasemdir

Snjóþrúgur

26. janúar 2010 klukkan 02:29
Góða kveldið!

Í gær (sunnudag) fórum við Valey í Rockwood park hérna í Saint John og leigðum okkur snjóþrúgur til að ganga á um garðinn. Þetta er nú enginn hefðbundinn almenningsgarður, heldur tæplega 900 hektara landflæmi í norðurhluta borgarinnar sem er þakinn blönduðum skógi að mestu, og inniheldur þar að auki nokkur stöðuvötn. Þessi garður er stærsti sinnar tegundar innann borgarmarka í Norður Ameríku. Á stærsta stöðuvatninu, Lily Lake, er síðan gert risaskautasvell á veturna og var þar mikið af fólki að skauta og spila hokkí. Þar sem við eigum ekki skauta, og ekki hægt að leigja þá þarna, þá leigðum við snjóþrúgur eins og áður sagði. Það var alveg frábært að labba um skóginn, elta dádýra eða héraslóða og fljóta um á snjónum, urðum alveg heilluð af þessu, og næsta skref er auðvitað að fjárfesta í svona græjum og taka til við að ráfa um skógana í nágrenninu. Svo er þetta auðvitað mjög góð æfing að auki.

Af okkur er annars að frétta að eftir að við fengum námslánin og góða styrki frá ömmum okkar höfum við getað keypt hluti sem hafa setið á hakanum í dáldinn tíma, erum komin með frábæra nýja dýnu, en sú gamla var algjört hræ, og það að sofa á henni var nánast eins og að sofa á berum rimlunum í rúminu. Við fengum okkur líka cable í sjónvarpið, og erum núna með nokkuð hundruð stöðvar, og getum því eytt kvöldunum í að skipta um stöðvar :)

Skólinn gengur fínt, er á fullu að vinna í að skilgreina verkefnið mitt, og að skrifa proposal fyrir það sem ég þarf síðan að verja í sumar eða haust til að verða fullgildur Doktorskandídat. Ég er líka að kenna í atferlisvistfræði og inngangi að sjávarvísindum og gengur það mjög vel, var með fyrirlestur í atferlisvistfræðinni um daginn, og verð með annan í næstu viku. Mjög góð reynsla sem mun eflaust nýtast vel í framtíðinni.

Jæja, nóg í bili, ætla að muna eftir myndavélinni í næsta snjóþrúguleiðangri og henda inn myndum af næstu ferð!

Kv.
G!
Valey Jokulsdottir
3 athugasemdir

Fyrsta bloggfærslan

24. janúar 2010 klukkan 00:07
Það er best að prófa þetta. Þetta verður sem sagt blogg sem ég (Valey) og Guðjón getum tjáð okkur um veruna hérna í Saint John NB Kanada og sett inn myndir. Það er síðan nokkrar auka síður sem við fyllum inn af skemmtilegu efni, það er ein síða komin og það er Vín listinn okkar, þar sem okkur finnst mjög gaman að smakka ólíkar tegundi vína og það er skemtilegt að geta skrifað það niður.

Við erum að fara á snjóþrúgur á morgun hlakka mikið til og ég get bloggað um það á morgun.

Kveðja Valey
Valey Jokulsdottir
Almennt | Engin athugasemd